2017: Vinnustofa um mannréttindakennslu og flóttafólk
Félag félagsfræðikennara í framhaldsskólum hefur í samvinnu við Íslandsdeild Amnesty International skipulagt vinnustofu fyrir kennara.
Staður: Kvennaskólinn í Reykjavík, Miðbæjarskóli
Tími: 15:30-18:00
Hér eru glærur frá vinnustofunni
Dagskráin er eftirfarandi:
Kennslufræðileg sýn Amnesty
Mannréttindakennsla
Herferðir Amnesty og málefni flóttafólks
Vala Ósk Bergsveinsdóttir fræðslustjóri Amnesty á Íslandi kynnir kennsluefni um mannréttindi og flóttafólkl. Á vinnustofunni fáum við tækifæri til að spyrja og ræða ákveðin málefni tengd flóttamannamálum en ekki hvað síst að prófa kennsluefni sem Amnesty hefur uppá að bjóða.
Við biðjum alla um að koma með far- eða spjaldtölvu með sér á vinnustofuna svo við getum öll prófað kennsluefnið. Eftir vinnustofuna verður léttur kvöldverður í boði félagsins.
Athugið að hægt er að fá ferðakostnað innanlands greiddan. Um er að ræða ákveðnar hámarksupphæðir á mann, sjá upplýsingar neðst á þessari síðu hér: https://www.rannis.is/sjodir/menntun/sef/styrkir-vegna-sumarnamskeida/. Björk gjaldkeri félagsins sér um að greiðslur til þátttakenda, netfangið er