Bologna (16)
Vormálþing 2022 (4)
Powered by Phoca Gallery
Nýjustu fréttir
Málþing um gervigreind og siðferði - 23. nóvember 2023 kl. 16.30 - Henry Alexander Henrysson
Gervigreindin - AI - er þema næsta málþings félagsins. Margar spurningar vakna varðandi gervigreindina, ein þeirra er siðferðissjónarhornið.
Til að ræða þessi mál höfum við fengið einn af okkar fremstu siðfræðingum, Henry Alexander Henrysson, til að gefa okkur innsýn inn í þessi mál, en þegar málþingið okkar er verður hann nýkomin af ráðstefnu Evrópuráðsins um þessi mál.
Henry verður með fyrirlestur og í kjölfarið tökum við umræður. Fimmtudaginn 23. nóvember kl. 16.30 - Staðsetning auglýst þegar nær dregur - léttar veitingar og öll velkomin!
Belfast 2023: ,,Lýðræði, umrót og átakamál“
Hér er hlekkur á kynningu Gunnars Hólmsteins Ársælssonar á því helsta sem bar við í námsferð félagsmanna til Belfast vorið 2023. Kynningin var flutt á aðalfundi félfél haustið 2023.