mánudagur, 16. nóvember 2015 - 14:30
Félagsfræðingafélag Íslands fagnar 20 ára afmæli sínu
Félagsfræðingafélag Íslands fagnar 20 ára afmæli sínu á þessu ári. Af því tilefni efnir félagið til afmælisráðstefnunnar: Af akri félagsfræðinnar - Rannsóknir á nútímasamfélagi föstudaginn 20. nóvember í Þjóðmenningarhúsinu. Boðið upp á veisluhlaðborð af fyrirlestrum og veitingum.
Dagskráin hefst kl. 15 og lýkur um kl. 20.
Dagskrá:
- Helgi Gunnlaugsson - Íslensk félagsfræði
- Stefán Ólafsson - Velferðarrannsóknir
- Ingi Rúnar Eðvarðsson - Atvinnulífsfélagsfræði
- Guðbjörg Linda Rafnsdóttir - Íslenskur sjávarútvegur
- Þorgerður Einarsdóttir - Femínismi sem fræðasvið
Kaffiveitingar
- Guðbjörg Hildur Kolbeins - Framtíð fjölmiðlarannsókna
- Jón Gunnar Bernburg - Afbrot og frávikshegðun
- Viðar Halldórsson – Íþróttafélagsfræði
- Arnar Eggert Thoroddsen – Dægurtónlistarfræði
- Kjartan Páll Sveinsson - Fólksflutningar
- Ágrip af sögu Félagsfræðingafélags Íslands
Hátíðardagskrá og veitingar
Frítt er fyrir félaga í FFÍ en 4.500 kr. fyrir aðra gesti. Svo hægt sé að áætla fjölda gesta vinsamlegast skráið ykkur á heimasíðu Félagsfræðingafélags Íslands, http://felagsfraedingar.is/?page_id=4433 þar er jafnframt hægt að óska eftir því að gerast félagi. Félagsgjaldið er 4.000 kr á ári. Innifalið í því er meðal annars áskrift af tímaritum og afslættir á ráðstefnur félagsins.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn Félagsfræðingafélags Íslands