Misskipting - lagskipting - inngilding Sumarnámskeið Félags félagsfræðikennara í framhaldsskólum 12. og 13. ágúst 2024

Misskipting - lagskipting - inngilding

Á sumarnámskeiði félagsins er hugmyndin að gera tilraun til að greina stöðuna í samfélaginu. Nemendur eru oft úr ólíkum áttum efnahagslega og félagslega og mikilvægt fyrir kennarann að vera meðvitaður um það. Nántengt þessu er stéttskipting. Með því að skoða landslagið hjá stéttarfélögunum er hægt að greina lagskiptinguna, hvort ójöfnuður sé að aukast. Kennarar geta haft áhrif á þá þróun. Eins er bakslag í jafnréttisbaráttu staðreynd. Það er mikilvægt að rýna í þá þætti sem gerir kennarann meðvitaðan um hvernig stuðla megi að menntun fyrir samfélag inngildingar.

Að auki verða vinnustofur um ýmis mál tengt viðfangsefninu.

Boðið verður upp á kaffiveitingar og léttan hádegisverð.

Á námskeiðinu verður möguleiki á sameiginlegum umræðuvettvangi með sögu og kynjafræðikennurum.

Sumarnámskeiðið fer fram dagana 12. og 13. ágúst 2024.

Staðsetning Kvennaskólanum í Reykjavík

Námskeiðið er endurgjaldslaust fyrir kennara og gildir sem 16 tímar upp í endurmenntunartíma kennara